Erlent

Einn dæmdur til dauða vegna uppþota í Kína

Urumqi héraðshöfuðborg Xinjiang.
Urumqi héraðshöfuðborg Xinjiang.
Einn var dæmdur til dauða og fjórir til viðbótar voru dæmdir í fangelsi fyrir að efna til uppþota í Xinjang héraði í sumar. Þá tókust á Han-Kínverjar og Úígúrar í nokkra daga.

Nærri 200 manns létust og meira en 1.700 slösuðust í átökunum, sem voru þau verstu í Kína svo áratugum skiptir. Mennirnir sem dæmdir voru eru allir Han-Kínverjar og samkvæmt dómnum áttu þeir þátt í að espa aðra til ofbeldisverka gegn Úígúrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×