Erlent

Hillary og Miliband þrýsta á Írani

Miliband og Hillary funduðu í London í dag.
Miliband og Hillary funduðu í London í dag. Mynd/AP
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, funduðu í dag og ræddu meðal annars um tilraunir Írana til að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Ráðherrarnir segja afar brýnt að Íranir semji um næstu skref.

Ráðamenn í Íran hafa verið harðlega gagnrýndir af leiðtogum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands eftir að upplýst var að þeir hefðu leynilega komið sér upp nýrri auðgunarstöð á úrani. Fjölmörg ríki óttast að tilraunir Írana með úran miði að því að gera þeim kleift að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Stjórnvöld í Íran hafa neitað því og fullyrt að tilgangurinn sé að búa til eldsneyti.

Hillary sem er í fimm daga heimsókn um Evrópu heimsótti Bretland í dag og fundaði meðal annars með Miliband. Að loknum fundi ræddu þau við fréttamenn og sagði Hillary að heimurinn myndi ekki bíða endalaust eftir því að Íranir skrifi undir samkomulag og láti af tilraunum sínum til að koma sér upp kjarnorkuvopnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×