Hröð bráðnun hækkar í sjó 2. mars 2009 02:15 Níutíu prósent alls jökulíss á jörðinni er á Suðurskautinu. fréttablaðið/AP
Jöklar Suðurskautslandsins eru að bráðna hraðar en áður var talið og það gæti leitt til meiri hækkunar sjávarborðs í heiminum en spáð hefur verið. Þetta fengu umhverfisráðherrar á annars tugs landa, þar á meðal Rússlands, Bandaríkjanna og Kína, að heyra á fundi með vísindamönnum í norsku rannsóknastöðinni Troll á Suðurskautslandinu. Í skýrslu fjölþjóðlegs hóps vísindamanna sem stundað hefur rannsóknir í tilefni af Heimskautaárinu 2007-2008 segir, að veðurfar á öllum vesturhluta Suðurskautslandsins sé að hlýna, ekki aðeins Suðurskautsnesið sem gengur í norður í átt að suðurodda Suður-Ameríku. „Þetta er óvenjulegt og óvænt,“ segir Colin Summerhayes, framkvæmdastjóri hinnar fjölþjóðlegu vísindanefndar um Suðurskautsrannsóknir um niðurstöður úr rannsóknum á gervihnattamyndum af syðstu heimsálfunni freðnu. Níutíu prósent alls jökulíss á jörðinni er að finna á Suðurskautslandinu. Hraðari bráðnun gæti því breytt miklu um spár um hækkun sjávarmáls vegna loftslagshlýnunar. Margt er enn á huldu um tengsl gróðurhúsaáhrifanna og afdrifa Suðurskautsíssins. Enda slepptu loftslagssérfræðingar SÞ í IPCC-nefndinni því í síðustu skýrslu sinni að taka útreikninga um bráðnun íss þar og á Grænlandi með í reikninginn, vegna þess hve þeir voru miklum óvissuþáttum undirorpnir. - aa
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent „Sá gamli er miklu fallegri“ Innlent Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Innlent „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Innlent Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Erlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Fleiri fréttir Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Sjá meira