Erlent

Smygluðu sér inn í boð hjá Obama og birtu á Facebook

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hjónin óboðnu stilla sér upp með Joe Biden varaforseta, gjörsamlega grunlausum.
Hjónin óboðnu stilla sér upp með Joe Biden varaforseta, gjörsamlega grunlausum. MYND/Facebook

Óboðnum hjónum tókst að lauma sér inn í kvöldverðarboð hjá Barack Obama í Hvíta húsinu á þriðjudagskvöldið. Um 300 gestir voru boðnir til kvöldverðarins sem var til heiðurs indverska forsætisráðherranum Manmohan Singh sem var í opinberri heimsókn. Hjónin eru frá norðurhluta Virginíu og heita Tareq og Michaele Salahi. Þau birtust í Hvíta húsinu, klædd í kjól og hvítt, og komust fram hjá stífri öryggisgæslu þrátt fyrir að vera ekki á gestalistanum. Hjónin eru þekkt samkvæmisfólk og pólóspilarar í Virginíu. Síðar um kvöldið birtu þau frásögn af atburðinum og myndir á Facebook-síðu sinni, öryggisvörðum forsetans til nokkurrar háðungar. Óvíst er hverjir eftirmálar verða aðrir en þeir að farið verður rækilega í saumana á aðgangsstýringu Hvíta hússins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×