Erlent

Vonar að Tékkar tefji ekki staðfestingu Lissabon sáttmálans

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar. Mynd/AP
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, vonar að Tékkar tefji ekki staðfestingu Lissabon sáttmálans. Pólverjar urðu í dag 26. af 27 þjóðum Evrópusambandsins til að staðfesta sáttmálann.

Til þess að sáttmálinn öðlist gildi þurfa allar aðildarþjóðir Evrópusambandsins að staðfesta hann. Tékkland er eina landið sem dregur lappirnar en þar ræður ríkjum Vaclac Klaus forseti sem er mikill andstæðingur sáttmálans og efasemdamaður um Evrópusambandið.

Svíar eru um þessar mundir í forystu fyrir Evrópusambandið. Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar vonast til að þess málið tefjist ekki frekar.

„Tékkland á enn eftir að ljúka við að staðfesta samninginn með undirskrift Klaus forseta. Evrópa bíður í ofvæni eftir að þetta gerist. Við þurfum ekki frekari töfum að halda," segir Reinfeldt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×