Redknapp er hættur að klappa leikmönnum sínum 7. febrúar 2009 12:35 Harry kallar eftir karlmennsku hjá Spurs NordicPhotos/GettyImages
Harry Redknapp stjóri Tottenham hefur enn og aftur lýst því yfir að nú sé kominn tími til fyrir hans menn að sýna þá nauðsynlegu hörku sem til þarf til að halda liðinu í úrvalsdeildinni. Tottenham virtist hafa snúið við blaðinu þegar Redknapp tók við liðinu fyrr í vetur, en eftir smá rispu í byrjun, hefur liðið sigið aftur á sama gamla planið. Sjálfstraustið horfið og merkja má hik og ótta í leik liðsins. Sigrarnir sjaldgæfir. Nú er kominn tími til að bretta upp ermarnar ef ekki á illa að fara segir þjálfarinn. "Við verðum að gera okkur grein fyrir því að nú snýst allt um að vinna. Það er ekki nóg að spila vel þegar allt gengur í haginn. Nú snýst þetta um meiri hörku. Þetta er ekki slæmt lið, mér finnst það bara þurfa að herða sig upp og ég hef látið menn vita af því undanfarið," sagði Redknapp. "Ég hef gert nóg af því að hrósa strákunum og segja þeim hve góðir þeir eru, en það þýðir ekkert til lengdar. Það þýðir ekkert að segja alltaf "vel gert, vel gert" ef liðið heldur áfram að tapa. Það kemur að því að maður þarf að segja eitthvað," sagði stjórinn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann hittir naglann á höfuðið í vetur, enda virðast leikmenn Tottenham stundum hafa meiri áhyggjur af því að laga á sér hárið en vinna tæklingar. Tottenham mætir erkifjendunum í Arsenal á White Hart Lane á morgun og ef Redknapp fær ekki svör frá leikmönnum sínum í þeim leik - fær hann þau líklega aldrei.
Enski boltinn Mest lesið Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Körfubolti Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Körfubolti Barcelona biður UEFA um leyfi Fótbolti Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Enski boltinn Mættur aftur tuttugu árum seinna Körfubolti „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ Íslenski boltinn Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum Íslenski boltinn „Ótrúlegt að við skyldum ekki klára leikinn fyrr“ Íslenski boltinn „Auðvitað skoraði Orri, hann skorar alls staðar“ Fótbolti Fleiri fréttir Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Sjá meira