Barist í Srí Lanka 2. febrúar 2009 12:31
Níu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar sprengjum var varpað þrívegis á sjúkrahús á norð-austurhluta Srí Lanka. Árásirnar voru gerðar á síðasta sólahring. Uppreisnarmenn Tamíltígra hafa völdin á svæðinu. Stjórnarher landsins segist ekki hafa gert árásir á sjúkrahúsið. Sjúkrahúsið er í bænum Puthukkudiyiruppu í Mullaitivu-héðraði þar sem uppreisnarmenn Tamíltígra ráða enn lögum og lofum. Töluvert hefur þrengt að þeim í sókn stjórnarhersins eftir að vopnahléssamkomulagi undir eftirliti Íslendinga og annarra Norðurlanda var sagt upp. Mörg þúsund almennir borgarar búa í héraðinu. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna sagði í samtali við BBC að einni hefði verið varpað á barnalækningadeild sjúkrahússins þar sem margt hafi verið um manninn. Önnur sprengja mun hafa lent á eldhúsinu og sú þriðja á kapellu spítalans. Níu féllu og minnst tuttugu særðust. Ekki er ljóst hverjir vörpuðu sprengjum á sjúrkahúsið. Stjórnarherinn segist ekki hafa gert það, liðsmenn Tamíltígra hafa ekki tjáð sig um málið. Mörg hundruð þúsund almennir borgarar eru fastir á átakasvæðum en stjórnarherinn stefnir að því að ganga milli bols og höfuðs á tígrunum og hafa umkringt þá á þrjú hundruð ferkílómetra svæði. Ekki hefur tekist að semja um að koma fólkinu í öruggt skjól. Tamílar hafa barist fyrir sjálfstæðu ríki í aldarfjórðung og hafa átök síðan þá kostað um sjötíu þúsund manns lífið.
Mest lesið „Þetta er innrás“ Innlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Segist vilja komast til himna Erlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Fleiri fréttir Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Sjá meira