Erlent

Kennslukona sem misnotaði nemanda sinn í fangelsi

Madeleine Martin.
Madeleine Martin.

Breska kennslukonan, Madeleine Martin, var dæmd í 32 mánaða fangelsi í Manchester í dag fyrir að sofa hjá 15 ára gömlum nemanda sínum. Martin var gift þegar hún átti í ástarsambandi við nemandann og sjálf á hún tvær unglingsdætur, önnur er 14 ára en hin er 17 ára gömul. Sú eldri greindist með krabbamein á svipuðum tíma.

Samkvæmt The Daily Mail hófst sambandið þeirra á milli þegar Martin aðstoðaði drenginn þar sem honum gekk illa í námi. Til að byrja með gaf hún honum gjafir eins og farsíma og svo byrjaði hún að tala við hann í gegnum samskiptavefinn Facebook.

Þá laug hún einnig fyrir hann þegar hann átti að sitja eftir í skólanum en mætti ekki.

Í janúar síðastliðnum fóru þau svo að sofa saman. Meðal annars í baksætinu á bílnum hennar, á heimili kennslukonunnar og fleiri stöðum. Níu dögum eftir að ástarsambandið hófst slitu þau því. Þá sagði drengurinn bróður sínum frá því sem hafði gerst og hann sagði móður þeirra sannleikann. Hún kærði síðan kennslukonuna.

Dómarinn sem dæmdi í máli Martins sagði hana hafa brugðist trausti nemanda síns og brot hennar væri sérstaklega alvarlegt í því ljósi. Hún ætti sér því engar málsbætur.

Verjandi Martins sagði í viðtali við The Daily Mail að henni þætti málið leitt. Auk þess að vera dæmd í 32 mánaða fangelsi þá verður Martin skráð á lista yfir kynferðisbrotamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×