Bandaríkin biðja Þjóðverja um að taka við Guantanamo föngum 3. maí 2009 16:15 Eric Holder vill að vinaþjóðir Bandaríkjanna taki við 30 föngum. Mynd/ AFP.
Bandarísk stjórnvöld hafa beðið þýsk stjórnvöld um að taka við föngum úr Guantanamo Bay fangabúðunum, samkvæmt upplýsingum frá talsmanni þýska innanríkisráðuneytisins. Talsmaðurinn sagði við AFP fréttastofuna að listi með nöfnum fanganna hefði borist ráðuneytinu. Það kemur svo í hlut ráðuneytisins að ákveða hvort fallist verður á beiðnina. „Ég get staðfest að Bandaríkin hafa sent beiðni um að við tökum á móti föngum úr Guantanamo og við höfum fengið nöfn og aðrar upplýsingar um fangana," sagði talsmaðurinn. Gert er ráð fyrir að farið verði yfir listann í ráðuneytinu á morgun. Fréttablaðið Der Spiegel segir að um sé að ræða 10 fanga, en talsmaður innanríkisráðuneytisins vill ekki staðfesta þá tölu. Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í heimsókn sinni til Berlín í síðustu viku að stjórnvöld væru með lista yfir 30 fanga sem vonast væri til að vinaþjóðir gætu tekið við. Þar á meðal væru fangar sem gætu ekki snúið til síns heima vegna þess að hætta væri á að þeir sættu ofsóknum þar. Talsmaður þýska innanríkisráðuneytisins sagði að tekin yrði ákvörðun um hvern einstakling fyrir sig. Hafa þyrfti útlendingalög til hliðsjónar og huga að því hvort fangarnir væru hættulegir.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Sjá meira