Erlent

Meintur stríðsglæpamaður þarf að mæta fyrir dóm

John Demjanjuk.
John Demjanjuk.
Dómstóll í Munchen í Þýskalandi úrskurðaði í dag að John Demjanjuk, meintur stríðsglæpamaður, skuli mæta fyrir rétt. Hann er er sagður hafa aðstoðað við að myrða þúsundir gyðinga þegar hann starfaði sem fangavörður í útrýmingarbúðum í síðari heimsstyrjöldinni.

Demjanjuk var framseldur frá Bandaríkjunum í vor en fjölskylda hans barðist hatrammlega gegn framsalinu. Demjanjuk hafði búið í Bandaríkjunum allt frá sjöunda áratug síðustu aldar.

Lögfræðingar Demjanjuk, sem er 89 ára, vildu meina að hann gæti komið fyrir rétt af heilsufarsástæðum. Ekki hefur verið ákveðið hvenær réttarhöldin hefjast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×