Erlent

Setja milljarða í bankakerfið

Jens Stoltenberg.
Jens Stoltenberg.

Norska ríkisstjórnin samþykkti í gær að leggja fram frumvarp um stofnun sjóðs sem í verði eitt hundrað milljarðar norskra króna, jafnvirði 1.700 milljarða íslenskra króna. Fjármunirnir verða nýttir til að hleypa nýju blóði í norskt efnahagslíf.

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir helming fjármagnsins renna til norsku bankanna svo þeir blási á ný lífi í útlánastarfsemi sína. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×