Erlent

Bretar unnu í Evrópulottóinu

Tveir Bretar skipta á milli sín tæplega 90 milljóna punda lottóvinningi sem dreginn var út í Evrópulottóinu á föstudaginn. Upphæðin nemur tæpum 19 milljörðum íslenskra króna.

Sky fréttastofan segir þetta í fyrsta sinn sem Breti fær stóra vinningin í Evrópulottóinu en vinningshafarnir munu hvor um sig fá um níu milljarða króna. Níu lönd taka þátt í Evrópulottóinu og getur vinningspotturinn oft hlaupið á milljörðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×