Erlent

Skaut sex, myrti einn og fannst heima hjá mömmu

Jason S. Rodriguez
Jason S. Rodriguez

Verkfræðingurinn Jason S. Rodriguez var handtekinn í kvöld eftir að hann ruddist inn á skrifstofu í Orlando, Flórida í Bandaríkjunum, vopnaður byssu. Hann skaut sex manneskjur, ein lést af skotsárum sínum.

Jason starfaði á skrifstofunni fyrir um tveimur árum síðan. Maðurinn ruddist einfaldlega inn á skrifstofuna í dag og hóf skothríð. Starfsmenn földu sig eftir bestu getu þar til sérsveit lögreglunnar mætti á vettvang. Jason komst undan en fannst stundu síðar heima hjá móður sinni.

Hann hefur verið handtekinn. Jason er talinn hafa verið einn að verki.

Þegar árásin átti sér stað var varla sólahringur liðinn síðan hermaðurinn og geðlæknirinn, Nidam Hasan, skaut og felldi þrettán hermenn í Fort Hood herstöðinni í Texas-fylki. Rúmlega þrjátíu hermenn liggja særðir eftir árásina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×