Chelsea að bjóða 38 milljónir og Deco í kaupbæti fyrir Sergio Aguero Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2009 12:00 Sergio Aguero er framtíðar landsliðsframherji Argentínu. Hér er hann með son sinn og barnabarn Diego Armando Maradona. Mynd/AFP
Enska slúðurblaðið The Daily Mail birti í dag uppsláttarfrétt um að Chelsea væri nálægt því að kaupa Argentínumanninn Sergio Aguero frá spænska liðinu Atletico Madrid en að sögn blaðsins þá mun enska liðið láta Portúgalann Deco fara með í kaupbæti. Chelsea mun vera að bjóða 38 milljónir punda og Deco að auki í þennan 21 árs gamla argentínska framherja en Sergio Aguero hefur skorað 42 mörk í 112 deildarleikjum með Atletico Madrid og 6 mörk í 18 landsleikjum með Argentínu. Það er almennt talið að spænska liðið vilji fá 50 milljónir punda fyrir stjörnuframherjann sinn sem hefur skorað 19 og 17 mörk á síðustu tveimur tímabilum í spænsku deildinni. Chelsea hefur verið rólegt á leikmannamarkaðnum í sumar en þeir Ross Turnbull, Daniel Sturridge og Yuri Zhirkov hafa komið til liðsins. Chelsea hefur verið orðað við nokkra stjörnuleikmenn eins og Franck Ribery, Andrea Pirlo auk Sergio Aguero. Deco mun örugglega fagna því að komast aftur til Spánar þar sem hann lék með Barcelona í fjögur tímabil en Portúgalinn sem er orðinn 31 árs gamall hefur ekki fundið sig á Brúnni.
Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Chelsea - Aston Villa | Endar sigurhrinan á Brúnni? Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Sjá meira