Býður lántakendum að veðsetja sálina Atli Steinn Guðmundsson skrifar 6. júlí 2009 08:15 „Bankastjórinn“ Viktor Mirosiichenko. Standi lántaki ekki í skilum glatar hann sálinni. Ætli Íslendingar gætu nýtt sér slíka veðsetningu í Icesave-málum? MYND/Reuters
Fyrirtæki í Lettlandi lánar fólki nú peninga gegn veði í óvenjulegri eign, nefnilega sál skuldunautarins. Kontora heitir fyrirtækið sem bryddað hefur upp á þessari framúrstefnulegu aðferð við að útvega fólki lán. Viktor Mirosiichenko stjórnar starfsemi fyrirtækisins og segir ferlið við lántökuna sáraeinfalt. Fólk leggi sál sína einfaldlega að veði, skrifi undir plagg þess efnis og peningarnir séu þar með til reiðu. Lántakinn þurfi ekki að skrifa meira en fornafn sitt undir samninginn þar sem hann lofar því að ódauðleg sál hans standi sem veð fyrir láninu eins og það er orðað á pappírunum. Mirosiichenko segir í samtali við Reuters-fréttastofuna að þeir sem ekki standi í skilum hafi einfaldlega enga sál lengur, það sé ekki flóknara. Þessi sálfræðilegu lán Kontora hafa verið vinsæl síðan fyrirtækið hóf starfsemi sína enda nánast útilokað að fá lán hjá lettneskum bönkum sem orðið hafa mjög illa úti í efnahagskreppunni eins og reyndar landið allt. Atvinnuleysi hefur vaxið hröðum skrefum í Lettlandi og síðasta ríkisstjórn landsins hrökklaðist frá völdum snemma á árinu vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. Litlum fyrirtækjum, sem lána fé, oft með okurvöxtum, hefur vaxið mjög fiskur um hrygg síðan síga tók á ógæfuhliðina og tengjast mörg þeirra rússnesku mafíunni. Ekki er ljóst hvort Kontora er tengt henni eður ei.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira