Enski boltinn

Grant vildi ekki Anelka

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nicolas Anelka.
Nicolas Anelka.

Avram Grant, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, var mótfallinn kaupum á Nicolas Anelka. Franski sóknarmaðurinn gekk til liðs við Chelsea frá Bolton á 15 milljónir punda í janúar síðastliðnum.

„Ég taldi mig ekki hafa þörf á Anelka. Hann er mjög góður leikmaður en þarf mun meiri ástríðu í sinn leik," sagði Grant en það var ákvörðun háttsettari manna hjá félaginu að kaupa Anelka.

Grant gaf það til kynna að fleiri leikmenn Chelsea væru ekki með rétta hugarfarið. „Sumir af leikmönnum liðsins eiga við vandamál að stríða sem þú getur ekki uppgötvað í unglingaliðunum," sagði Grant.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×