Enski boltinn

Hermann skoraði fyrir Portsmouth

Peter Crouch spilaði sinn fyrsta leik fyrir Portsmouth
Peter Crouch spilaði sinn fyrsta leik fyrir Portsmouth NordcPhotos/GettyImages

Hermann Hreiðarsson var á skotskónum í gær þegar Portsmouth sigraði Swindon 3-1 í æfingaleik á County Ground. Swindon komst reyndar yfir í leiknum en Hermann Hreiðarsson skoraði jöfnunarmark Portsmouth.

Jermain Defoe kom Portsmouth yfir með marki úr vítaspyrnu en var svo skipt af velli í hálfleik fyrir Peter Crouch sem þarna var að spila sinn fyrsta leik með liðinu. Það var svo Danijel Subotic sem innsiglaði sigur Portsmouth með marki undir lokin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×