Daniel Agger, varnarmaður Liverpool, segist vera á byrjunarreit aftur á ferli sínum hjá félaginu. Hann hefur verið frá vegna meiðsla í tíu mánuði.
Hann lék í gær sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool síðan hann meiddist í september á síðasta ári. Agger var keyptur frá Bröndby í janúar 2006.
Agger lék í 75 mínútur þegar Liverpool vann 1-0 sigur á Tranmere í æfingaleik. „Það er frábært að vera kominn aftur. Þetta hefur verið erfiðasti tími ferils míns," sagði Agger.
„Tímabilið framundan er mjög mikilvægt fyrir mig. Ég hef misst mikið úr síðasta ár og mér finnst eins og ferill minn hjá Liverpool sé að hefjast aftur. Samkeppnin er mikil um þá stöðu sem ég er að spila en ég er tilbúinn í hana."