Enski boltinn

Giggs fær heiðursgráðu í heimabænum

NordcPhotos/GettyImages

Knattspyrnumaðurinn Ryan Giggs hjá Manchester United hefur verið sæmdur heiðursgráðu við háskólann í heimabæ sínum Salford í Wales.

Giggs varð leikjahæsti leikmaður í sögu Manchester United á síðustu leiktíð en hann fékk viðurkenninguna ekki síður fyrir framlag sitt til mannúðarmála. Hann hefur m.a. starfað fyrir Unicef í Suður-Afríku í HIV og Aids herferðum samtakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×