Enski boltinn

Shevchenko fær tækifæri hjá Scolari

NordcPhotos/GettyImages

Luiz Felipe Scolari, nýráðinn stjóri Chelsea, ætlar að gefa Úkraínumanninum Andriy Shevchenko fullt tækifæri til að sanna sig hjá liðinu næsta vetur. Shevchenko hefur átt misjöfnu gengi að fagna síðan hann var keyptur til Chelsea frá AC Milan á metfé.

Scolari virðist hafa fulla trú á framherjanum ef marka má orð hans í Daily Star í dag.

"Shevchenko var 12 sinnum í byrjunarliði á síðustu leiktíð og skoraði 8 mörk. Hann er leikmaður sem við bindum vonir við og ef mér líst vel á hann á æfingum, mun ég setja hann í liðið," sagði Scolari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×