Meiðslin skemmdu mikið fyrir okkur 21. mars 2008 15:30 NordcPhotos/GettyImages
Alan Curbishley, stjóri West Ham, segist ekki hafa hugmynd um möguleg leikmannakaup félagsins í sumar eftir að meiðsli settu stórt strik í reikninginn hjá liðinu í vetur. Curbishley þurfti að bregðast við brottför manna eins og Marlon Harewood, Carlos Tevez og Yossi Benayoun þegar hann tók við, en Hamrarnir voru duglegir að kaupa leikmenn síðasta sumar. Ekki fóru þessi kaup öll á besta veg og þrír af nýjustu leikmönnum liðsins hafa varla verið með í allan vetur. Franski miðjumaðurinn Julien Faubert náði ekki einu sinni að hefja leiktíðina eftir að hann sleit hásin í æfingaleik síðasta sumar og Kieron Dyer fótbrotnaði skömmu eftir að hann vann sér sæti í enska landsliðinu á ný. Þeir Craig Bellamy og Scott Parker hafa lítið sem ekkert getað spilað vegna meiðsla og þá eru meiðslavandræði West Ham-manna fjarri því upptalin. Öll þessi meiðsli hafa því eðlilega sett strik í reikninginn í áformum West Ham á leikmannamarkaðnum í sumar, en þá hefur félagið sér til aðstoðar nýjan yfirmann knattspyrnumála - Ítalann Gianluca Nani. "Við eyddum talsverðum fjármunum síðasta sumar en menn gleyma því að við fengum líka mikið til baka. Við eyddum um 28 milljónum punda en við fengum líka um 22 milljónir til baka með því að selja leikmenn," sagði Curbishley. "Við losuðum okkur við nokkra leikmenn en því miður hafa þeir sem komu í staðinn ekki náð að spila mikið. Við misstum þá Parker, Faubert og Bellamy á fyrstu tveimur vikunum, en það litla sem maður hafði séð til þeirra lofaði mjög góðu. Ef þeir ná sér allir, verðum við komnir með fjóra til fimm nýja leikmenn og við vonum að þeir verði allir búnir að ná sér áður en undirbúningstímabilið hefst í sumar. Ef þeir ná sér mun það vissulega hafa áhrif á það hvort við kaupum leikmenn í sumar eða ekki, en við höfum hreinlega ekki sest niður og tekið ákvörðun um hvað verður í þeim efnum," sagði Curbishley.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira