Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Þorsteinn Hjálmsson skrifar 1. október 2026 19:46 Afturelding vann stórsigur á Fram í Olís-deild karla Anton/Vísir Fram var niðurlægt á heimavelli í kvöld í Olís-deildinni. Gestirnir í Aftureldingu gjörsamlega völtuðu yfir heimamenn sem gátu ekki spilað vörn fyrir sitt litla líf, en staðan í hálfleik var 15-22. Lokatölur 24-42 og Fram að tapa þriðja leiknum í röð á meðan Mosfellingar vinna sinn þriðja sigur á tímabilinu og eru komnir í þriðja sæti deildarinnar. Liðin fylgdust að í markaskori fyrstu mínúturnar og staðan 4-4 eftir sjö mínútur. Þá náðu gestirnir að skora þrjú mörk í röð og mynduðu sér forystu sem hélst í tveimur til þremur mörkum næstu mínúturnar. Staðan 8-11 fyrir gestunum eftir 17 mínútur. Var í raun ótrúlegt að horfa upp á spilamennsku heimamanna sem eftir var fyrri hálfleiks. Framarar hættu nánast að spila vörn og markverðir liðsins klukkuðu varla bolta og fengu þeir því á sig ellefu mörk til viðbótar á sig fram að hálfleiksflauti. Á meðan stóð vörn Aftureldingar sig töluvert betur og Sigurjón Bragi Atlason náði að verja nokkur dauðafæri í marki Mosfellinga. Staðan því 15-22 í hálfleik í Úlfarsárdalnum og brekkan brött fyrir heimamenn fyrir síðari hálfleikinn. Í síðari hálfleik varð þessi brekka að ókleifu fjalli, því eftir sex mínútur í síðari hálfleik var tíu marka munur á liðunum. Á 41. mínútu tók Einar Jónsson, þjálfari Fram, leikhlé en þá höfðu gestirnir skorað tíu mörk gegn aðeins þremur hjá Fram í síðari hálfleik. Munurinn jókst bara og jókst sem leið á leikinn og fékk Hákon Daði Styrmisson lausan tauminn í liði gestanna og raðaði inn mörkum. Endaði leikurinn því með átján marka sigri gestanna sem er ótrúlegt miðað við að liðin eru í sömu deild. Atvik leiksins Á 26. mínútu kom mark leiksins. Árni Bragi Eyjólfsson fékk þá boltann í hraðaupphlaupi, en var komin í þrönga stöðu. Í stað þess að reyna að klára færið þá kastaði hann boltanum inn í teiginn á Hákon Daða Styrmisson sem kom á fleygiferð og greip boltann í loftinu og skoraði. Sirkusmark! Var það mark númer 20 hjá gestunum og tók Einar Jónsson, þjálfari Fram, strax leikhlé í kjölfar marksins enda orðinn sjö marka munur á liðunum á þessum tímapunkti. Stjörnur og skúrkar Hákon Daði var með 17 mörk í kvöld úr öllum regnbogans litum. Þegar korter var eftir af leiknum og var Hákon Daði þá settur í stöðu leikstjórnanda, en Hákon Daði er hornamaður. Ekki var betur séð en með þessari tilfærslu átti að koma honum í fleiri skotfæri til þess að skora enn meira. Daninn í liði gestanna, Oscar Lykke, var frábær einnig í kvöld. Níu mörk hjá honum og hóf hann leikinn sérstaklega vel. Sigurjón Bragi Atlason var frábær í marki gestanna, en hann kom snemma leiks inn á fyrir Einar Baldvin Baldvinsson. Sigurjón Bragi endaði með yfir 50 prósent markvörslu í leiknum, sem er alls ekki týnt upp úr götunni. Dómarar Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson bara flottir í kvöld. Ekki erfiður leikur að dæma, en þeir gerðu það þó vel. Stemning og umgjörð Framarar gengu ansi súrir út úr Lambhagahöllinni í kvöld og stemningin eftir því á meðan leik stóð. Mosfellingar studdu þó sitt lið alveg til loka og voru skiljanlega hæstánægðir með sína menn. Annars var umgjörðin flott í kvöld hjá Fram, en fyrr um kvöldið hafði kvennaliðið leikið gegn Selfossi og því öllu tjaldað til. Einar Jónsson: „Þetta var bara lélegt“ Einar var skiljanlega ekki sáttur með útkomu leiksins.Anton/Vísir „Það er ekki mikið að segja. Þetta var hroðalegt, það er bara þannig. Við erum ekki á góðum stað eins og staðan er í dag,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir tap kvöldsins. „Hvað sem veldur, það er fullt af skýringum að því. Þetta var bara lélegt alveg sama hvar maður ber niður. Við erum bara ekkert á allt of góðum stað í dag, en við höfum rúma viku til þess að rífa okkur upp.“ Fram fékk á sig 22 mörk í fyrri hálfleik og enduðu að lokum með 42 mörk á sig. Liðið hefur verið að fá mikið af mörkum á sig í hverjum leik á tímabilinu hingað til og er þetta í annað sinn sem þeir fá 40 mörk á sig eða meira eftir aðeins fimm leiki. Aðspurður út í varnarleik liðsins hafði Einar þetta að segja. „Varnarleikurinn er bara ekki búinn að vera góður í vetur. Við erum bara endalaust að missa leikmenn út líka, þannig að við náum varla samfellu í það að smíða einhverja vörn eða gera eitthvað. Við erum dálítið mikið búnir að vera púsla saman liði í hverjum leik, það afsakar samt ekki neitt. Menn vita alveg til hvers er ætlast af þeim. Þetta er bara lélegt og ég þarf að skoða það, ég tek það bara hundrað prósent á mig.“ Að lokum var Einar spurður hvort það væri ljós við enda gangana, en liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð og þar af tveimur stórt. „Já, enginn spurning. Við eigum fullt af mönnum inni. Það er fullt af skýringum á þessu, margt sem ég tek bara fullkomlega á mig og á kassann. Ég veit alveg að það eru bjartir tímar fram undan. Ég hef ekki áhyggjur af þessu, en þetta er leiðinlegt og er lélegt. Við munum rífa okkur upp og koma sterkir til baka. Það er auðveldast að spyrna sér frá botninum.“ Olís-deild karla Afturelding Fram Handbolti