Rólegt á yfirborðinu í Naíróbí, en kraumar undir niðri 1. janúar 2008 14:42 Ómar Valdimarsson er búsettur í Naíróbí þar sem ástand er afar ótryggt í kjölfar umdeildra kosninga.
Ómar Valdimarsson, sendifulltrúi Rauða krossins er búsettur í Nairóbí í Kenýa þar sem nú ríkir afar ótryggt ástand í kjölfar umdeildra forsetakosninga þar sem stjórnvöld hafa verið ásökuð um víðtækt kosningasvindl. Að minnsta kosti 250 hafa fallið í átökum síðustu daga en Ómar, sem vinnur sem forstöðumaður upplýsingadeildar á svæðisskrifstofu Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans fyrir Austur-Afríku, segir að dagurinn í dag sé sá rólegasti frá því kosningarnar fóru fram í síðustu viku. „Það er nú rólegt á yfirborðinu, sennilega rólegasti dagurinn hér í borg síðan á kjördag," segir Ómar í samtali við Vísi. „En maður finnur fyrir spennu undir niðri. Menn bíða nú eftir miklum útifundi sem Raila Odinga, sá sem bauð sig fram gegn Kibaki forseta, er búinn að boða til á fimmtudaginn kemur. Hann vill fá milljón manns á fundinn og þar geta orðið vandræði," segir Ómar, sem hefur verið búsettur í Kenýa í tæp tvö ár. Hann segir að það væsi ekki um sig og sína fjölskyldu en öll börn hans nema elsta dóttirin eru í heimsókn yfir hátíðarnar. „Það fer ágætlega um okkur, við búum rétt utan við miðbæinn, en eitt stærsta slömm Afríku blasir við út um stofugluggann hjá okkur. Þar býr um ein milljón manns og strax og Kibaki var svarinn í embætti fóru reykjarbólstrar að stíga upp víðsvegar um hverfið." Að sögn Ómars er mesta ófremdarástandið í vesturhluta landsins en átökin eru að vissu leyti ættbálkaerjur, þar sem Kibaki forseti er af Kikuyu ættbálkinum sem er meirihluti landsmanna en Odinga tilheyrir Luo ættbálknum og nýtur stuðnings þeirra. „En þetta er ekkert búið, það er greinilegt," segir Ómar. „Odinga er með meirihluta á þinginu og það á eftir að verða erfitt fyrir Kibaki að halda í stjórnartaumana." Ómar segir ekki bæta úr skák að Bretar og Evrópusambandið hafa gagnrýnt framkvæmd kosninganna harðlega á síðustu dögum og ef satt reynist að kjörsókn í einu kjördæmi hafi verið heil 115 prósent auk þess sem tölur stemmi ekki í átta öðrum kjördæmum þá sé augljóslega pottur brotinn. Til stóð að Rauði krossinn myndi opna skrifstofu í Nairóbí á morgun en af því verður ekki vegna hins ótrygga ástands. Ómar segir að þeim hafi þótt hyggilegra að bíða og sjá hvort ástandið lagist ekki á næstu dögum. Að sögn hans eru flestir þeirra útlendinga sem starfa hjá Rauða krossinum í landinu heima hjá sér yfir jólin. „Ég er hér með minni konu og þremur af fjórum börnum og síðan er hér einn Norðmaður, en við förum okkur hægt og bíðum þess að öldurnar lægi," segir Ómar Valdimarsson, sendifulltrúi Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Naíróbí í Kenýa.
Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Innlent Hellisheiði er lokuð Innlent Rúta út af og Þingvallavegi lokað Innlent Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Innlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Fleiri fréttir Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Sjá meira