Keane svekktur á slúðrinu 22. desember 2008 14:44 Robbie Keane skoraði fallegt mark gegn Arsenal um helgina NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Robbie Keane viðurkennir að hann sé orðinn mjög þreyttur á því að fólk sé að slúðra um framtíð hans hjá Liverpool. Keane hefur verið gagnrýndur mikið í vetur síðan hann var keyptur á stórfé frá Tottenham, en hlaut uppreisn æru í gær þegar hann skoraði jöfnunarmark Liverpool gegn Arsenal á Emirates. Mikið hefur verið slúðrað um Keane að undanförnu og blöðin hafa gengið svo langt að ætla að hann verði seldur frá Liverpool í janúar. Í síðustu viku greindu blöðin frá meintu spjalli fyrirliðans Steven Gerrard og Mark Lawrenson fyrrum leikmanns liðsins, þar sem þeir eiga að hafa rætt að framtíð Keane væri upp í loft hjá félaginu. Þetta var að hluta dregið til baka en Keane hefur fengið nóg. "Ég er ekki svekktur yfir því að uppi séu vangaveltur um framtíð mína hjá félaginu. Það eina sem fer í taugarnar á mér er þegar fólk utan félagsins er að slúðra um hluti sem hafa með mig að gera, því þar er fólk að tala um eitthvað sem það hefur ekki hundsvit á," sagði Keane og er segir gagnrýnendum sínum að bíða hægum. "Ég hef alltaf sagt að ég muni skora mörk fyrir þetta lið, en ég vil helst vera dæmdur í lok tímabils - ekki í desember," sagði Írinn marksækni. Hann viðurkenndi að það hefði verið ljúft að skora á móti Arsenal, enda hafði hann spilað með erkifjendum liðsins í Tottenham síðustu ár. "Það er alltaf gott að skora á móti Arsenal, sérstaklega í ljósi þess að áhorfendurnir voru búnir að vera að bauna á mig áður en ég skoraði. Maður mátti svo sem eiga von á því, hafandi spilað fyrir Tottenham, en það var því þeim mun sætara að setja mark á þá."
Enski boltinn Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Sjá meira