Enski boltinn

Hólmar Örn til West Ham

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr leik HK gegn ÍA fyrr í sumar.
Úr leik HK gegn ÍA fyrr í sumar.

Hólmar Örn Eyjólfsson hefur leikið sinn síðasta leik í sumar fyrir lið HK í Landsbankadeildinni. Hann hefur náð samkomulagi við West Ham og mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið á næstu dögum.

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu en samkvæmt heimildum blaðsins er upphæðin sem West Ham greiðir fyrir Hólmar sú hæsta sem íslenskt félag hefur fengið fyrir leikmann.

Hómar er sautján ára en hann á um 20 leiki að baki fyrir HK í Landsbankadeildinni. Þá hefur hann leikið 12 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann er sonur Eyjólfs Sverrissonar, fyrrum landsliðsmanns og landsliðsþjálfara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×