Enski boltinn

Yngsti dómari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar

Elvar Geir Magnússon skrifar
Attwell lyfti upp rauða spjaldinu þegar hann dæmdi bikarleik Swansea og Havant & Waterlooville.
Attwell lyfti upp rauða spjaldinu þegar hann dæmdi bikarleik Swansea og Havant & Waterlooville.

Enska knattspyrnusambandið hefur fært Stuart Attwell í efsta flokk dómara. Hann er þar með orðinn yngsti dómari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en hann er aðeins 25 ára.

Keith Hackett, yfirmaður dómaramála á Englandi, segir að Attwell hafi sýnt frábæra frammistöðu viku eftir viku á síðasta tímabili. „Undir pressu sýndi hann mikla yfirvegun og samskipti hans við leikmenn voru til fyrirmyndar," sagði Hackett.

Attwell hefur skotist hratt upp dómarastigann en hann byrjaði að dæma fimmtán ára gamall 1998. Árið 2007 var hann færður á lista yfir deildardómara á Englandi.

„Hann er yngsti dómari sem settur hefur verið sem úrvalsdeildardómari. Hann hefur öðlast mikla virðingu leikmanna, knattspyrnustjóra og áhorfenda fyrir ákvarðanir sem hann hefur tekið. Heldur sér í frábæru formi og skilur leikinn vel," sagði Hackett. „Hann stendur undir þeim kröfum sem við gerum til dómara í úrvalsdeildinni."

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×