Upphitun fyrir leiki kvöldsins á Englandi 30. janúar 2008 13:45 Ronaldo hefur verið sjóðandi heitur að undanförnu Nordic Photos / Getty Images
Nokkrir áhugaverðir leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld og verða þeir allir sýndir beint á rásum Sýnar. Manchester United freistar þess að ná toppsæti deildarinnar á ný þegar það tekur á móti Portsmouth á Old Trafford. United fer á toppinn á markamun ef það vinnur sigur, en Arsenal er á toppnum eftir góðan 3-0 sigur á Newcastle í gærkvöld. Chelsea er ekki langt á eftir toppliðunum í þriðja sætinu og þó liðið hafi ekki spilað sérstaklega vel undanfarið, verður það að teljast sigurstranglegt gegn Reading í kvöld. Reading er aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið og mikið þarf að ganga á svo liðið stöðvi 74 leikja hrinu Chelsea án taps á Stamford Bridge. Everton er í bullandi baráttu um sæti í Meistaradeildinni og í kvöld tekur liðið á móti Tottenham á heimavelli sínum. Þar mætast væntanlega stálin stinn, en lærisveinar Juande Ramos hafa verið að rétta úr kútnum nýverið. Vel kemur til greina að Jonathan Woodgate spili sinn fyrsta leik fyrir Tottenham í kvöld. Mikil pressa verður á lærisveinum Rafa Benitez í Liverpool þegar þeir sækja Íslendingalið West Ham heim á Upton Park. Ekkert minna en Meistaradeildarsæti dugar Benitez á leiktíðinni og vonandi ná hans menn að hressa sig við eftir að hafa lent í vandræðum með áhugamennina í Havant & Waterlooville í bikarnum á dögunum. Botnlið Derby tekur á móti Manchester City á Pride Park þar sem gestirnir munu reyna að jafna sig eftir "blöðrumarkið" fræga sem þeir fengu á sig þegar þeir duttu út úr bikarnum gegn Sheffield United. Derby hefur aðeins fengið 7 stig úr fyrstu 23 leikjum sínum í vetur og virðist dæmt til að falla. Leikir kvöldsins: West Ham - Liverpool, 19:45 Sýn Man Utd - Portsmouth, 20:00 Extra Chelsea - Reading, 19:45 Extra 2 Everton - Tottenham, 20:00 Extra 3 Derby - Man City, 19:45 Extra 4
Enski boltinn Mest lesið „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Eiginkona þjálfara hjá Chiefs skotin Sport Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Körfubolti Samstarf við rússneskt veðmálafyrirtæki varð Pirlo að falli Fótbolti Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn Hljóðlátu mótmælin munu ekki fara fram hjá neinum Fótbolti Infantino svarar gagnrýnendum í langri færslu: „Heimurinn þarf ást, ekki hatur“ Fótbolti Fleiri fréttir Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Sjá meira