Múrari og öskukarl stefna á Anfield Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. janúar 2008 10:12 Markahetjan Rocky Baptiste og Jamie Slabber fagna jafnteflinu gegn Swansea. Nordic Photos / Getty Images
Havant & Waterlooville er eina utandeildarliðið sem er eftir í ensku bikarkeppninni og stefnir að því að komast í fjórðu umferð þar sem næsti andstæðingur gæti verið Liverpool á Anfield Road. Fyrst þarf liðið að vinna Swansea á heimavelli sínum, West Leigh Park í Havant, en liðin gerðu 1-1 jafntefli nú um helgina. Liðið er vitanlega fyrst og fremst skipað áhugamönnum sem afla fyrst og fremst tekna af öðrum störfum. Einn leikmaður er öskukarl og annar sundlaugavörður, svo dæmi séu tekin. Miðvallarleikmaðurinn Brett Poate starfar sem múrari á daginn en hann ætlar sér sigur gegn Swansea eins og félagar sínir. Stjórnarformaður Havant & Waterlooville hefur meira að segja lofað leikmönnum þriggja daga ferð til Las Vegas í lok tímabilsins ef þeim tekst að komast í fjórðu umferð. „Ég fór þangað þegar ég var tvítugur en mátti hvorki spila fjárhættuspil eða drekka áfengi þá. Ég hefði því mjög gaman af því að fara aftur," sagði Poate sem hóf ferilinn sem táningur hjá Southampton. Það er talsvert meira en leikmenn fengu fyrir að komast í þriðju umferðina. Þá fengu þeir bónusgreiðslu upp á 100 pund, um tólf þúsund krónur. Hann spáir sínu liði 2-1 sigri í leiknum gegn Swansea. Poate vonast einnig til að eiga ríkan þátt í sigri liðsins svo hann komist að í Match of the Day, þætti á BBC þar sem fjallað er um leiki dagsins í enska boltanum. „Það væri frábært því það myndi hjálpa mér að komast á stefnumót," sagði Poate. „Atvinnumenn eru auðvitað vel þekktir og eiga í engum vandræðum með að ná sér í stelpur. Það er ekki beinlínis raunin í Havant," bætti múrarinn geðþekki við. Markahetjan Rocky Baptiste komst vitanlega í Match of the Day um helgina eftir að hann skoraði jöfnunarmark sinna manna gegn Swansea. En hann er nú þegar giftur. „Það fyrsta sem ég gerði eftir leikinn var að hringja í Teneku, eiginkonu mína, og fá hana til að taka þáttinn upp," sagði Rocky. Leikur liðanna um helgina var afar fjörlegur, tvö glæsileg mörk litu dagsins ljós auk þess sem leikmenn Swansea áttu þrjú skot í slána. Þá fengu tveir leikmenn rautt eftir ansi skrautlega tveggja fóta tæklingu og slagsmál sem brutust út í kjölfarið. Sjá má samantekt úr leiknum hér.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira