Enski boltinn

Seedorf vill spila á Englandi

Elvar Geir Magnússon skrifar

Clarence Seedorf, miðjumaður AC Milan, vonast til að leika í ensku úrvalsdeildinni áður en ferli hans lýkur. Tíminn er þó að renna út fyrir leikmanninn sem er 32 ára.

Seedorf er hollenskur og hefur leikið fyrir Ajax, Sampdoria, Real Madrid og Inter. Í viðtali við BBC sagði Seedorf að draumur sinn sé að spila á Englandi og útilokar hann ekki að sá draumur rætist.

Á sínum tíma var hann nálægt því að fara til Manchester United eða Arsenal en hann valdi Real Madrid.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×