Erlent

Enn fjöldamótmæli gegn Tyrklandsstjórn

Giskað var á að allt að ein og hálf milljón manna hefði tekið þátt í fundinum í Izmir. Margir veifuðu þjóðfánanum og myndum af Mustafa Kemal Atatürk.
Giskað var á að allt að ein og hálf milljón manna hefði tekið þátt í fundinum í Izmir. Margir veifuðu þjóðfánanum og myndum af Mustafa Kemal Atatürk. MYND/AP

Yfir ein milljón Tyrkja safnaðist saman í strandborginni Izmir (áður Smyrna), þriðju stærstu borg landsins, til að lýsa ugg um að ríkisstjórnarflokkurinn, sem á rætur í íslamskri hreyfingu, sé að leggja á ráðin um að troða trúarlegum gildum upp á þjóðfélagið.

Þúsundir lögreglumanna reyndu að hafa stjórn á mannfjöldanum, daginn eftir að sprengja sprakk á útimarkaði í borginni sem varð einum manni að bana og særði fjórtán. Enginn lýsti yfir ábyrgð á árásinni, og engar vísbendingar voru um að hún tengdist mótmælafundinum. Izmir er hafnarborg við Eyjahaf og er mikið vígi þeirra sem vilja standa vörð um strangan aðskilnað trúar og stjórnmála, í anda Mustafa Kemal Atatürk, stofnanda tyrkneska lýðveldisins. Stjórnmálaflokkar með trúarleg tengsl eiga erfitt uppdráttar þar.

Fjöldafundurinn í gær var skipulagður í því skyni að sýna mátt og megin veraldlega sinnaðra Tyrkja fyrir þingkosningar sem nú er áformað að halda þann 22. júlí. Sambærilegir fjöldafundir voru haldnir í Ankara og Istanbúl fyrir skemmstu.

Að sögn fulltrúa úr hernum mætti ein og hálf milljón manna á fundinn í Izmir.

Markmið fjöldafundanna er að setja þrýsting á ríkisstjórn Recep Tayyip Erdogan í kjölfar þess að hún tilnefndi utanríkisráðherrann Abdullah Gül, sem er trúaður múslimi og náinn pólitískur samherji Erdogans í Réttlætis- og þróunarflokknum (AKP), til embættis þingkjörins forseta lýðveldisins. Hin veraldlega sinnaða stjórnarandstaða og stór hluti almennings, eins og sjá má af mætingunni á fjöldafundina, reis upp á móti forsetaframboði Güls og hann dró það loks til baka.

„Þessi fjöldamótmæli hafa gagnast til að þvinga stjórnina til að taka eitt skref afturábak,“ hefur AP eftir Neslihan Erkan, einum þátttakenda í mótmælunum í Izmir í gær. „Hættan er ekki liðin hjá. Þessir fjöldafundir verða að halda áfram uns hættunni hefur verið bægt frá.“

„Ég er hér til að verja land mitt,“ sagði annar mótmælandi, Yuksel Uysal. „Ég er hér til að verja byltingu Atatürks.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×