Erlent

Laus eftir fjögurra mánaða gíslingu

Hamas-samtökin beittu sér fyrir lausn Johnstons og telur ráðgjafi Mahmoud Abbas að um sé að ræða blekkingu Hamas-samtakanna.
Hamas-samtökin beittu sér fyrir lausn Johnstons og telur ráðgjafi Mahmoud Abbas að um sé að ræða blekkingu Hamas-samtakanna. ap/fréttablaðið

Breski sjónvarpsfréttmaðurinn Alan Johnston var látinn laus á þriðjudagskvöld eftir að hafa verið í haldi samtaka sem kalla sig Her íslams á Gaza-svæðinu í nærri fjóra mánuði.



Johnston sagði að síðustu sextán vikurnar hefðu verið þær verstu í lífi sínu. Hann líkti prísund sinni við það að vera grafinn lifandi og mannræningjarnir hefðu hótað honum lífláti nokkrum sinnum.

Johnston var látinn laus eftir að Hamas-samtökin, sem ráða yfir Gaza-svæðinu, höfðu beitt Her íslams auknum þrýstingi um að láta fréttamanninn lausan.



Í síðustu viku birti Her íslams myndband af Johnston þar sem hann sást með sprengjubelti vafið um sig og samtökin hótuðu að kveikja í því ef Hamas-samtökin reyndu að frelsa fréttamanninn með valdi. Þetta varð til þess að Hamas-samtökin urðu ágengari í tilraunum sínum til að fá Johnston lausan: á mánudag handtóku liðsmenn Hamas talsmann Hers íslams og á þriðjudag umkringdu samtökin staðinn þar sem Johnston var í haldi.



Yasser Abd Rabbo, sem er einn helsti ráðgjafi Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, sagði í samtali við blaðið Haaret"z í gær að lausn Johnstons væri blekking Hamas-samtakanna til að láta líta út fyrir að samtökin fylgdu alþjóðalögum á Gaza. Abbas rak Ismail Hanieyh frá Hamas-samtökunum úr embætti forsætisráðherra Palestínu um miðjan júní eftir að Hamas hafði tekið völdin á Gaza. Samtökin neituðu að láta völdin á svæðinu af hendi og lofuðu að fá Johnston lausan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×