Erlent

Evrópsk skrá um flugfarþega

Franco Frattini „Betri leiðir til að fæla og koma upp um hryðjuverkamenn.“
Franco Frattini „Betri leiðir til að fæla og koma upp um hryðjuverkamenn.“ fréttablaðið/ap

Brussel, AP Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú að leggja drög að nýjum aðgerðum til hryðjuverkavarna, sem munu meðal annars ná til skipulagðrar skráningar á upplýsingum um flugfarþega í öllum aðildarríkjunum.



Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, greindi frá þessu í gær. Hann sagði að samkvæmt áformunum yrði öllum aðildar­ríkjunum boðið upp á að koma á fót kerfi til að skrá upplýsingar um flugfarþega alls staðar að úr heiminum, sem leið ættu um lofthelgi þeirra. Frattini sagði að enn fremur stæði til að setja lög sem gera refsivert að setja leiðbeiningar um sprengjugerð á netið.



Frattini sagðist myndu kynna pakka frumvarpa að nýjum hryðjuverkavörnum fyrir dómsmálaráðherrum aðildarríkjanna í október. „Við munum finna betri leiðir til að fæla og koma upp um hryðjuverkamenn,“ tjáði Frattini fréttamönnum í Brussel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×