Paisley og Adams á sögulegum fundi 26. mars 2007 06:59 Gerry Adams AFP
Í dag rennur út frestur sem héraðsþing Norður-Írlands hefur til að mynda heimastjórn. Formælendur stærstu flokka sambandssinna og aðskilnaðarsinna hittast í dag á sögulegum fundi til að reyna að mynda stjórn, annars fara stjórnvöld í London með völdin áfram líkt og undanfarin fjögur ár. Einni síðustu hindruninni í samskiptum kaþólskra aðskilnaðarsinna og sameiningarsinnaðra mótmælenda á Norður-Írlandi verður rutt úr vegi í dag þegar Ian Paisley formaður Sameiningarflokksins fundar með Gerry Adams formanni Sinn Féin. Þeir munu reyna að komast að samkomulagi um að deila völdum í landinu. Peter Hain, Norður-Írlandsmálaráðherra bresku ríkisstjórnarinnar hefur sett neyðarlög til að þvinga fram stjórn og rennur frestur til þess út í dag. Sem fyrr segir markar fundur Paisley og Adams tímamót og er að mati stjórnmálaskýrenda táknrænn um friðvænlegra Norður-Írland. Formenn þessara tveggja flokka hafa aldrei áður átt í friðsamlegum tvíhliða viðræðum um völd. Ekki tókst að mynda heimastjórn á Norður-Írlandi eftir kosningarnar fyrir fjórum árum og kom þingið sem þá var kjörið fyrst saman í fyrravor. Reglur segja til um að þátttöku fjögurra stærstu flokkanna þurfi til að mynda megi heimastjórn. Ef enginn árangur verður af viðræðum Paisley og Adams verður engin heimastjórn mynduð á þessu kjörtímabili frekar en því síðasta.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Erlent Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Erlent „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Innlent Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Innlent Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa Innlent Fleiri fréttir Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Sjá meira