Erlent

Paisley og Adams á sögulegum fundi

Gerry Adams
Gerry Adams AFP

Í dag rennur út frestur sem héraðsþing Norður-Írlands hefur til að mynda heimastjórn. Formælendur stærstu flokka sambandssinna og aðskilnaðarsinna hittast í dag á sögulegum fundi til að reyna að mynda stjórn, annars fara stjórnvöld í London með völdin áfram líkt og undanfarin fjögur ár.

Einni síðustu hindruninni í samskiptum kaþólskra aðskilnaðarsinna og sameiningarsinnaðra mótmælenda á Norður-Írlandi verður rutt úr vegi í dag þegar Ian Paisley formaður Sameiningarflokksins fundar með Gerry Adams formanni Sinn Féin. Þeir munu reyna að komast að samkomulagi um að deila völdum í landinu.

Peter Hain, Norður-Írlandsmálaráðherra bresku ríkisstjórnarinnar hefur sett neyðarlög til að þvinga fram stjórn og rennur frestur til þess út í dag. Sem fyrr segir markar fundur Paisley og Adams tímamót og er að mati stjórnmálaskýrenda táknrænn um friðvænlegra Norður-Írland. Formenn þessara tveggja flokka hafa aldrei áður átt í friðsamlegum tvíhliða viðræðum um völd.

Ekki tókst að mynda heimastjórn á Norður-Írlandi eftir kosningarnar fyrir fjórum árum og kom þingið sem þá var kjörið fyrst saman í fyrravor. Reglur segja til um að þátttöku fjögurra stærstu flokkanna þurfi til að mynda megi heimastjórn. Ef enginn árangur verður af viðræðum Paisley og Adams verður engin heimastjórn mynduð á þessu kjörtímabili frekar en því síðasta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×