Erlent

Skutu 50 lögreglumenn til bana

Mynd/Google Maps

Uppreisnarmenn réðust að varðstöð lögreglu á Mið-Indlandi í dag og skutu 50 lögreglumenn til bana. Árásirnar urðu í Chhattisgarh-héraði Indlands en þar eru uppreisnarmenn Maóista fjölmennir. Þeir hafa í 30 ár barist, að því að þeir segja fyrir réttindum bænda sem ekki eiga jarðir og afskiptra ættbálka. Þúsundir hafa farist í árásum þeirra undanfarna áratugi á Mið- og Suður-Indlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×