Erlent

Byltingarkennt skref í loftslagsmálum

Tony Blair sagði frumvarpið byltingarkennt skref í því að taka á ógninni sem fylgir loftslagsbreytingum.
Tony Blair sagði frumvarpið byltingarkennt skref í því að taka á ógninni sem fylgir loftslagsbreytingum. MYND/AP

 Árið 2050 mun Bretland hafa dregið úr útblæstri koldíoxíðs um 60 prósent og um 26 til 32 prósent árið 2020 miðað við stöðuna árið 1990 samkvæmt frumvarpsdrögum sem bresk stjórnvöld kynntu á þriðjudag.

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði frumvarpið marka tímamót og muni verða fordæmi fyrir aðra þjóðarleiðtoga um að berjast af krafti gegn þeim ógnum sem fylgi loftslagsbreytingum. Sagði Blair að markmið Bretlands væri að þvinga aðrar Evrópuþjóðir til aðgerða og jafnvel Bandaríkjamenn, Kínverja og Indverja einnig.

Í frumvarpinu er meðal annars kveðið á um að fimm ára áætlanir um útblástur verði settar fram með að minnsta kosti fimmtán ára fyrirvara. Er því ætlað að varpa ljósi á ferlið og einnig að hvetja fyrirtæki og einstaklinga til að fjárfesta í umhverfisvænni tækni.

Nefnd um loftslagsbreytingar verður skipuð sem veitir stjórnvöldum sérfræðiráðgjöf við að ná markmiðum laganna. Nefndin mun einnig árlega skila framvinduskýrslu til þingsins sem stjórnvöld þurfa að svara fyrir.

Þá þurfa stjórnvöld að gefa út skýrslu að minnsta kosti á fimm ára fresti um áhrif loftslagsbreytinga á þeim tíma og hverjar horfurnar eru samkvæmt spám.

Lokaútgáfa frumvarpins verður lögð fram í þinginu seinna á þessu ári og vonast stjórnvöld til að það verði að lögum á fyrri helmingi næsta árs. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×