Mótmæli settu svip á ferðina 15. mars 2007 06:00 Mótmælendur brenndu heimagerðan bandarískan fána sem var með hauskúpur í stað stjarna í Mexíkóborg í gær. MYND/AP
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, lauk í gær sjö daga heimsókn sinni í Suður-Ameríku. Ofbeldisfull mótmæli einkenndu ferðina sem virðist aðallega hafa verið táknræn og til þess að bæta tengsl við álfuna þar sem engir nýir samningar voru gerðir. Undanfarin ár hafa vinstrisinnaðir leiðtogar komist til valda víða um Suður-Ameríku, oft með málflutningi sem beinist gegn stjórnvöldum í Bandaríkjunum. Meðan á heimsókn Bush stóð ferðaðist einn helsti gagnrýnandi Bush, hinn vinstrisinnaði forseti Venesúela, Hugo Chavez, einnig um ríki Suður-Ameríku og hæddist að stefnu Bandaríkjaforseta. Bush endaði ferðina í nágrannaríkinu Mexíkó þar sem pólitískir hagsmunir Bandaríkjanna eru hvað mestir. Óeirðaástand braust út í Mexíkóborg í gær þegar mótmælendur slógust við óeirðalögreglu fyrir framan bandaríska sendiráðið í Mexíkóborg, grýttu hótelið sem Bush dvaldi á og brenndu bandaríska fánann meðal annars. Helsta gagnrýnin á Bush beinist að hertri innflytjendalöggjöf í Bandaríkjunum og stefnu bandarískra stjórnvalda varðandi stríðið í Írak. Andúð í garð Bandaríkjanna jókst til muna eftir að Bush undirritaði frumvarp um að koma upp hundruð kílómetra langri girðingu, vegatálmum og innrauðum myndavélum á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.
Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Erlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Innlent Tveir starfsmenn á heilsugæslu með berklasmit Innlent Fleiri fréttir Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Sjá meira