Sanchez: Bjóst við erfiðum leik gegn Íslandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. nóvember 2007 13:36 Lawrie Sanchez er nú stjóri Fulham. Nordic Photos / Getty Images
Lawrie Sanchez tjáir sig í nýrri bók um tíma hans sem landsliðsþjálfari Norður-Írlands. Leikur Norður-Írlands og Íslands í Belfast spilar stórt hlutverk í bókinni. Sanchez var landsliðsþjálfari Norður-Íra í þrjú og hálft ár. Undir hans stjórn vann liðið England á heimavelli í undankeppni HM 2006 og landið fór á hvolf í kjölfarið. Það voru því miklar væntingar fyrir næstu undankeppni, fyrir EM 2008 sem nú stendur yfir, en fyrsti andstæðingur Norður-Íra voru Íslendingar á Windsor Park í Belfast. Ísland vann leikinn, 3-0, og í kjölfarið fóru samskipti Sanchez við norður-írsku pressuna á versta veg. Hann sagði að það bil hafi aldrei verið brúað aftur. „Ég vissi að leikurinn gegn Íslandi yrði mjög erfiður,“ segir Sanchez í bók sinni. „Íslenska liðið átti fleiri leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og ég vissi hversu góðir þeir voru.“ Hann segir að því miður hafi blöðin í Norður-Írlandi afskrifað Ísland og að það hafi Eyjólfur Sverrisson þáverandi landsliðsþjálfari fært sér í nyt. „Hann sagði: „Þið hafið séð hvað stendur í blöðunum. Þeir taka okkur greinilega ekki alvarlega. Nú skulum við sýna þeim hvað við getum.“ Þeir náðu svo að skora þrívegis í fyrri hálfleik en varnarleikur okkar var slakur.“ Sanchez segir fyrr í bókinni að fyrst hafi byrjað að halla undan fæti í samskiptum hans við fjölmiðlamenn þegar hann bannaði þeim að gista á sama hóteli og landsliðið væri á í ferðum liðsins. Tapið gegn Íslandi hafi svo gert það að verkum að pressan tók Sanchez af lífi eftir leikinn. Nokkrum dögum síðar mættu Norður-Írar Spánverjum og unnu frækinn sigur, 3-2, þökk sé þrennu David Healy. Sanchez mætti ekki á blaðamannafund eftir leikinn og var afar nálægt því að hætta. Hann ákvað að halda áfram eftir að hann fyrir gríðarmiklum stuðningi í þjóðfélaginu. Hann segir einnig að það hafi verið erfiðasta ákvörðun sem hann hafi þurft að taka þegar hann ákvað að hætta sem landsliðsþjálfari til að taka endanlega við Fulham síðastliðið sumar. Úrdráttur úr bókinni birtist hér í grein The Belfast Telegraph.
Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti „Langir fætur hjálpa við að sparka í hausinn á þeim“ Sport Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira