Vakti óhug meðal nemenda 19. apríl 2007 05:00 Þúsundir með kerti Minningarathöfn um hina látnu var haldin í Virginia Tech-háskólanum í Blacksburg á þriðjudagskvöld. MYND/AFP
Margir nemendur og nokkrir kennarar við Virginia Tech-háskólann höfðu haft áhyggjur af Cho Seung-Hui, hinum 23 ára gamla nemanda sem framdi fjöldamorð í skólanum á mánudaginn. Sumir óttuðust að hann ætti eftir að fremja einhver voðaverk. „Við vorum alltaf að grínast með að við værum bara að bíða eftir að hann gerði eitthvað, bíða eftir að frétta af einhverju sem hann hefði gert,“ sagði Stephanie Derry, ein af skólasystrum hans. „En þegar ég fékk símtal um að það hafi verið Cho sem gerði þetta, þá fór ég bara að gráta, ég veinaði og grét.“ Cho hafði verið kærður til lögreglu fyrir að leggja tvær skólasystur sínar í einelti og árið 2005 var farið með hann á geðsjúkrahús vegna þess að talin var hætta á að hann fremdi sjálfsvíg. Cho stundaði nám við enskudeild skólans og skrifaði bæði leikrit og ljóð sem vöktu óhug meðal samnemenda hans og kennara. Textarnir voru ofbeldiskenndir, þóttu barnalegir og fullir af heift. Öllum sem þekktu hann var ljóst að eitthvað mikið var að. „Ég veit við erum að tala um ungmenni,“ segir Nikki Giovanni, einn af kennurum hans við enskudeild skólans, „en það var einhver illska í þessum dreng.“ Hún segir að margir nemenda sinna hafi hætt að mæta vegna þess hvernig Cho hagaði sér. Hún fékk því framgengt að hann var rekinn úr tímunum en annar kennari, Lucinda Roy, tók þá að sér að kenna honum í einkatímum. „Hann var svo fjarlægur og einmana,“ sagði Roy. „Það var næstum eins og að tala út í tómið, eins og hann væri ekki á staðnum. Hann var með sólgleraugu og dró hattinn svo langt niður að það sást varla í andlitið.“
Mest lesið Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Innlent Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Innlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Innlent Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Erlent Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Erlent Fleiri fréttir Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Sjá meira