Erlent

Vakti óhug meðal nemenda

Þúsundir með kerti Minningarathöfn um hina látnu var haldin í Virginia Tech-háskólanum í Blacksburg á þriðjudagskvöld.
Þúsundir með kerti Minningarathöfn um hina látnu var haldin í Virginia Tech-háskólanum í Blacksburg á þriðjudagskvöld. MYND/AFP

Margir nemendur og nokkrir kennarar við Virginia Tech-háskólann höfðu haft áhyggjur af Cho Seung-Hui, hinum 23 ára gamla nemanda sem framdi fjöldamorð í skólanum á mánudaginn. Sumir óttuðust að hann ætti eftir að fremja einhver voðaverk.

„Við vorum alltaf að grínast með að við værum bara að bíða eftir að hann gerði eitthvað, bíða eftir að frétta af einhverju sem hann hefði gert,“ sagði Stephanie Derry, ein af skólasystrum hans. „En þegar ég fékk símtal um að það hafi verið Cho sem gerði þetta, þá fór ég bara að gráta, ég veinaði og grét.“

Cho hafði verið kærður til lögreglu fyrir að leggja tvær skólasystur sínar í einelti og árið 2005 var farið með hann á geðsjúkrahús vegna þess að talin var hætta á að hann fremdi sjálfsvíg. Cho stundaði nám við enskudeild skólans og skrifaði bæði leikrit og ljóð sem vöktu óhug meðal samnemenda hans og kennara. Textarnir voru ofbeldiskenndir, þóttu barnalegir og fullir af heift. Öllum sem þekktu hann var ljóst að eitthvað mikið var að.

„Ég veit við erum að tala um ungmenni,“ segir Nikki Giovanni, einn af kennurum hans við enskudeild skólans, „en það var einhver illska í þessum dreng.“ Hún segir að margir nemenda sinna hafi hætt að mæta vegna þess hvernig Cho hagaði sér. Hún fékk því framgengt að hann var rekinn úr tímunum en annar kennari, Lucinda Roy, tók þá að sér að kenna honum í einkatímum.

„Hann var svo fjarlægur og einmana,“ sagði Roy. „Það var næstum eins og að tala út í tómið, eins og hann væri ekki á staðnum. Hann var með sólgleraugu og dró hattinn svo langt niður að það sást varla í andlitið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×