Erlent

Fellibylur veldur usla í Japan

Fellibylurinn olli töluverðu tjóni í borginni Naha í suðurhluta Okinawa.
Fellibylurinn olli töluverðu tjóni í borginni Naha í suðurhluta Okinawa. MYND/AFP

Hundruð manna þurftu að flýja heimili sín og fjölmargir slösuðust þegar fellibylurinn Man Yi gekk yfir japönsku eyjun Okinawa í nótt. Þá fór rafmagn af stórum hluta eyjunnar. Vindhraðinn hefur náð mest allt að 234 kílómetrum á klukkustund.

Gert er ráð fyrir því fellibylurinn nái til meginlands Japans á morgun og er þá reiknað með allt 500 millimetra rigningu á sumum svæðum.

Tólf skipverja af kínversku skipi er saknað eftir að fellibylurinn gekk yfir hafsvæði norðvestur af eyjunni Guam á miðvikudaginn. Þá var fjölmörgum bjargað eftir að bátar og skip sukku völdum veðurofsans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×