Erlent

Tinni í Kongó send í útlegð

Hinir vinalegu en umdeildu félagar Tinni og Tobbi
Hinir vinalegu en umdeildu félagar Tinni og Tobbi

Teiknimyndasagan Tinni í Kongó hefur verið fjarlægð úr hillum Borders, einnar stærstu bókabúðakeðju Bretlands. Ástæðan er að bókin þykir uppfull af kynþáttafordómum gagnvart þeldökku fólki.

Breskur lögfræðingur rakst á bókina í hillum verslunarinnar og kvartaði til jafnréttisráðs Bretlands. Jafnréttisráðið telur að banna skuli bókina enda lýsi hún íbúum landsins sem fáráðum sem í einfeldni sinni geri hund að kóngi.

Bókin kom fyrst út árið 1931 en alls hafa 220 milljónir eintaka selst af þeim 23 bókum sem lýsa ævintýrum Tinna og vina hans. Bækurnar hafa verið þýddar á 77 tungumál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×