Erlent

Alcan verður líklega selt

Móðurfélag Alcan á Íslandi gæti skipt um eigendur á næstunni en ástralska álfyrirtækið Rio Tinto hefur gert tilboð í það.
Móðurfélag Alcan á Íslandi gæti skipt um eigendur á næstunni en ástralska álfyrirtækið Rio Tinto hefur gert tilboð í það.

Ástralska námufyrirtækið Rio Tinto hefur gert tilboð upp á 38 milljarða dollara, eða tæpa 2.300 milljarða króna, í kanadíska álfyrirtækið Alcan, móðurfélag Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík.

Boð Rio Tinto er hærra en tæplega 1.700 milljarða króna boð bandaríska álfyrirtækisins Alcoa, sem stjórn Alcan hafnaði í maí. Stjórn Alcan ætlar að mæla með því að hluthafar í Alcan taki boði Rio Tinto, en 66,7 prósent þeirra þurfa að samþykkja það.

Ef salan gengur eftir mun nýja fyrirtækið heita Rio Tinto Alcan og hafa aðsetur í Montreal í Kanada.


Tengdar fréttir

hvað er rio tinto?

Rio Tinto er eitt stærsta námu­fyrirtæki heims og hefur höfuð­stöðvar á Bretlandseyjum og í Ástralíu. Með kaupunum á Alcan verður til stærsta álfyrirtæki í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×