Varar við svefnlyfjum sem leitt hafa til svefnaksturs 22. mars 2007 10:48
Lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur gefið út viðvörun vegna tiltekinna svefnlyfja þar sem þau geta haft í för með sér óvenjulegar aukaverkanir eins og akstur eða neyslu matar í svefni. Dæmi er um slíkt hér á landi. Eftir því sem danska fríblaðið 24timer greinir frá hefur Lyfjastofnun Bandaríkjanna fengið tilkynningar frá fólki sem hefur rankað við sér í bílstjórasætinu á bíl sínum jafnvel í nær- eða náttfötum einum fata eftir að hafa neytt lyfjanna. Þá eru jafnframt dæmi um að fólk hafi borðað í svefni og vaknað með matarumbúðir í rúminu. Um er að ræða þrettán tegundir lyfja og munu þrjár þeirra vera seldar í Danmörku eftir því sem 24timer greinir frá. Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að stofnunin hafi fengið eina eða tvær tilkynningar eins og þessar þar sem fólk muni hvað hafi gerst eftir að hafa neytt tiltekins svefnlyfs. Hún bendir þó á að alls berist 80 tilkynningar um aukaverkanir til stofnunarinnar á ári hverju. Þessi aukaverkun sé nefnd framvikt minnisleysi og sé skráð sem aukaverkun með sumum lyfjum. Rannveig segir Lyfjastofnun ekki hafa fengið tilkynningu vegna þessara tilteknu lyfja frá Bandaríkjunum en gott samstarf sé við evrópskar lyfjastofnanir og sömuleiðis milli Lyfjastofnunar Evrópu og Lyfjastofnunar Bandaríkjanna. Þá áréttar hún að mikilvægt sé að heilbrigðisstarfsmenn tilkynni aukaverkanir lyfja til Lyfjastofnunar.
Mest lesið Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Erlent Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Erlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Innlent Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa Innlent Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Innlent Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Sjá meira