Erlent

Varar við svefnlyfjum sem leitt hafa til svefnaksturs

Lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur gefið út viðvörun vegna tiltekinna svefnlyfja þar sem þau geta haft í för með sér óvenjulegar aukaverkanir eins og akstur eða neyslu matar í svefni. Dæmi er um slíkt hér á landi.

Eftir því sem danska fríblaðið 24timer greinir frá hefur Lyfjastofnun Bandaríkjanna fengið tilkynningar frá fólki sem hefur rankað við sér í bílstjórasætinu á bíl sínum jafnvel í nær- eða náttfötum einum fata eftir að hafa neytt lyfjanna. Þá eru jafnframt dæmi um að fólk hafi borðað í svefni og vaknað með matarumbúðir í rúminu. Um er að ræða þrettán tegundir lyfja og munu þrjár þeirra vera seldar í Danmörku eftir því sem 24timer greinir frá.

Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að stofnunin hafi fengið eina eða tvær tilkynningar eins og þessar þar sem fólk muni hvað hafi gerst eftir að hafa neytt tiltekins svefnlyfs. Hún bendir þó á að alls berist 80 tilkynningar um aukaverkanir til stofnunarinnar á ári hverju. Þessi aukaverkun sé nefnd framvikt minnisleysi og sé skráð sem aukaverkun með sumum lyfjum.

Rannveig segir Lyfjastofnun ekki hafa fengið tilkynningu vegna þessara tilteknu lyfja frá Bandaríkjunum en gott samstarf sé við evrópskar lyfjastofnanir og sömuleiðis milli Lyfjastofnunar Evrópu og Lyfjastofnunar Bandaríkjanna. Þá áréttar hún að mikilvægt sé að heilbrigðisstarfsmenn tilkynni aukaverkanir lyfja til Lyfjastofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×