Erlent

Fjórar stúlkur brenndust á Hróarskelduhátíðinni

Frá Hróarskelduhátíðinni.
Frá Hróarskelduhátíðinni. Mynd/ AFP

Fjórar ungar konur brenndust alvarlega í gassprengingu á Hróarskelduhátíðinni nú í kvöld. Stúlkurnar voru að ljúka við að elda mat þegar gashitari sprakk. Þær voru samstundis færðar á sjúkrahúsið í Hróarskeldu og þaðan voru þær fluttar á brunadeild Ríkisspítalans, að því er fram kemur á vef Danmarks Radio.

Óhappið átti sér stað á þeim hluta hátíðarssvæðisins sem er ætlað til matseldar. Jan Kristiansen, slökkviliðsmaður hjá slökkviliðinu í Hróarskeldu, segir það vera mikil mildi að eldurinn hafi ekki kviknað inni í tjaldi.

Ekki er vitað hverrar þjóðar stúlkurnar eru. Sextánhundruð Íslendingar hafa keypt miða á Hróarskelduhátíðina og verða samkvæmt upplýsingum á heimasíðu hennar 2 % gesta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×