Erlent

Stilla saman strengi gegn Íran

Forsetarnir voru hinir kumpánlegustu er þeir stigu fram fyrir ljósmyndarana við Atlantshafsströndina í gær.
Forsetarnir voru hinir kumpánlegustu er þeir stigu fram fyrir ljósmyndarana við Atlantshafsströndina í gær. MYND/AP

George W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti sneru í gær bökum saman gagnvart meintri kjarnorkuvígvæðingaráætlun Íransstjórnar.

„Þegar Rússland og Bandaríkin leggjast á eitt hefur það yfirleitt sín áhrif og þess vegna kann ég að meta afstöðu Rússa í Sameinuðu þjóðunum,“ sagði Bush á blaðamannafundi eftir fund forsetanna í sumarhúsi Bush-fjölskyldunnar við Atlantshafsströndina í Kennebunkport í Maine. „Við erum nærri því að viðurkenna að við verðum að vinna saman til að koma sameiginlegum boðskap á framfæri,“ sagði hann.

Pútín spáði því að „við munum halda áfram að ná árangri“ innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Aðrir fulltrúar í öryggisráðinu eru byrjaðir að ræða tillögu Bandaríkjastjórnar um hertar þvingunaraðgerðir gegn Íran vegna þess að Íransstjórn neitar að stöðva auðgun úrans.

Meðal annarra mála sem Bush og Pútín greinir á um eru lýðræði og eldflaugavarnir, stækkun NATO og sjálfstæði Kosovo. Lítilla framfara varð vart í þeim á fundi forsetanna. Pútín stakk upp á fleiri valkostum að breytingum á eldflaugavarnaáætlun Bandaríkjamanna, en Bush sagðist eftir sem áður vilja byggja upp aðstöðu fyrir eldflaugavarnakerfið í Póllandi og Tékklandi, sem Rússar eru mjög mótfallnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×