Erlent

Lokun kjarnaofna í sjónmáli

Norður-Kóreumenn munu líklega loka aðalkjarnaofni sínum þegar skipsfarmur af olíu berst til þeirra. Fulltrúi Suður-Kóreustjórnar segir að Norður-Kóreumenn hafi greint frá þessu í viðræðum landanna tveggja.

Þetta þýðir að hinar margfrestuðu lokanir á kjarnaofnunum eru innan seilingar því áformað er að senda farminn innan tveggja vikna. Olíusendingin er hluti af aðstoð sem Norður-Kóreumenn fá gegn því að loka kjarnaofnum sínum sem geta framleitt efni í kjarnorkuvopn.

Norður-Kóreustjórn hefur opinberlega ekki nefnt hvenær hún hyggst loka kjarnaofnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×