Erlent

Marka friðvænlegri tíma

Evrópusambandið segir kosningarnar hafa farið vel fram.
Evrópusambandið segir kosningarnar hafa farið vel fram. MYND/AP

Talning er hafin í þingkosningunum í Austur-Tímor en þær eru taldar marka friðvænlegri tíma eftir ofbeldishrinu síðasta árs.

Eftir að nær þriðjungur atkvæða hafði verið talinn var flokkur Mari Alkatir forsætisráðherra með naumt forskot á flokk Xanana Gusmao.

Fyrir rúmu ári brutust út átök milli lögreglu og hersins á Austur-Tímor sem urðu til þess að 37 manns dóu og 155.000 flúðu heimili sín en á Austur-Tímor býr tæp ein milljón manna.

Mikið atvinnuleysi og fátækt hrjáir þjóðina og hafa 10 prósent uppflosnaðra enn ekki þorað að snúa til síns heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×