Erlent

Alþjóðlegar tóbaksvarnir

Fulltrúar fjölda landa og Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (WTO) skoruðu í gær á Bandaríkin, Rússland og fleiri lönd að ganga til liðs við alþjóðlegan tóbaksvarnasáttmála.

Hingað til hafa 148 ríki fullgilt sáttmálann, sem gerður var árið 2003, en nú fer fram ráðstefna um fullgildingu hans í Bangkok í Taílandi. Dr. Haik Nikogosian, talsmaður sáttmálans sagði það myndu hafa „hnattræn áhrif“ ef Bandaríkin og Rússland bættust við, ekki bara vegna mikillar neyslu tóbaks í þessum löndum heldur ekki síður fyrir þær sakir að þau flytja mikið tóbak út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×